Jæja þannig er mál með vexti að ég er að taka þátt í remix “keppni” á vegum eins bresk danstónlistar manns og þar sem þessi “tjalli” ákvað að hafa bara .wav í keppninni þá er ég frekar óheppinn þar sem mér finnst best að vinna með midi fæla í svona og ég var að pæla í hvort einhver hérna væri til í að reyna að pikka upp .wav fælinn á .mid fæl fyrir mig.

Þeir sem hefðu áhuga + hæfileikana til þess að gera þetta fyrir mig ættu auðvitað að senda mér skilaboð endilega í formi “einkaskilaboða” og þannig fengju þessir aðilar allar upplýsingar.

Persónulega þekki ég nokkra íbúa erlendra ríkja sem gætu gert þetta fyrir mig en ég ákvað að spyrja ykkur íslendingana hvort þið gætuð gert þetta ,og vona ég að þið “stökkvið á áskorunina” og aðstoðið mig í þessum efnum.

(þeir sem hjálpa fá auðvitað allt “credit” sem þeir eiga skilið)