Oki ég sé að enginn í heiminum les tilkynningarnar sem eru aðeins neðar á síðunni svo ég ætla setja það helsta hingað inn.

Hljóðvinnslutriviað gekk vel, og skulum við klappa fyrir davida sem flaskaði aðeins á einni spurningu.

Nýr Kubbur er kominn upp sem inniheldur tónlistarskrár, ég sé að nokkrir eru að linka lög sem þeir hafa tekið upp og svona vesen þannig að þessi kubbur er því tilvalinn í að láta inn hljóðbrot eða lög sem þið hafið tekið upp. Þið sendið bara mail á vefstjori@hugi.is með yfirskriftinni Innsent MP3 og tilgreinið nafn lags, nafn tónlistarmanns, veffang og stefnu. Það væri líka gaman að í nafni tónlistarmanns kæmi í sviga nick upptökumanns á huga, eins og t.d. Celine Dion Tribute Band(ZooMix)-Titanic cry song.mp3

Fyrir næstu Trivia sem verður væntanlega í Janúar ætla ég að reyna að hafa einhver verðlaun. Svo bíðiði spennt og byrjiði að æfa ykkur!

Svo að lokum hvet ég alla til að senda inn greinar, myndir, linka og kannanir! Og Gleðileg Jól!



Bætt við 14. desember 2006 - 12:16
OG SENDIÐ LÖG LÍKA INN!