Jæja, núna vil ég sjá alla senda inn myndir, senda inn kannanir og senda inn tengla! Reynum að halda þessu svolítið uppi.

Einnig er gaman þegar einhverjir búa til korka með pælingum á borð við “Hvort finnst ykkur betra, Shure Beta 58A eða Shure Beta 87A?” Ef þið viljið koma á umræðu, geriði það þá.

Svo vil ég sjá fleiri greinar frá notendum koma fljúgandi inn. Það þarf ekki að vera heimsklassagrein um tíðnisvið radíómica í seinni heimstyrjöldinni. Bara þið að segja þegar þið fóruð í stúdíó eða þegar þið tókuð upp með hljómsveitinni sjálf. Þessvegna þegar þú fórst í búðarleiðangur til að skoða mica niðrí bæ. Allt tengt hljóði, er leyfilegt!

KOMA SVO, HLAÐIÐ INN EFNI!