Sæl veriði.

Ég hef núna bæst við í hóp stjórnenda hér á Hljóðfæri. Vill því byrja á að minna notendur á greina keppnina og hvetja alla til að senda inn sem mest af efni svo við getum hækkað okkur upp um sæti eða tvö.

Einnig vill ég endilega minna fólk á að það má alveg senda inn tengla, atburði og margt fleira. :)

Og endilega sleppið allri feimni þegar þið sendið inn myndir, það er óhætt að setja inn upplýsingar um myndina (t.d. ef um ykkar hljóðfæri er að ræða er um að gera að segja eitthvað frá því, í staðinn fyrir að skrifa bara “minn”).