Jæja, það er kominn nýr stjórnandi á áhugamálið. Og eins og glöggir notendur áhugamálsins sjá þá hef ég verið ráðinn í starfið.

Ég vill taka það fram að ég mun reyna að standa mig sem best að halda áhugamálinu gangandi og í góðu standi.

Og mig langaði til að byrja með benda fólki á að það hafa komið inn mjög fáar kannanir undanfarið og ég hvet ykkur til að senda inn fleiri. En muna bara að hafa í huga að allir mögulegir möguleikar komi fram (a.m.k. “já”, “nei” og “veit ekki (hlutlaus)”).

Takk fyrir mig.


Morgoth
…djók