Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

Gítarólar (12 álit)

Gítarólar Hér eru sérsniðnu gítarólarnar mínar. Sú gamla (þessi með járnkrossunum) fékk ég árið 2005 en hina fékk ég í hendurnar núna fyrir áramót.

Þurfti ég að láta styrkja gömlu ólina þar sem straplockið fer í vegna þess að gatið var byrjað að rifna, nú er komið ný útgáfa af henni og nú mun hún aldrei rifna :D

Konan sem gerði þessar ólar fyrir mig var að pæla hvort það væri markaður fyrir svona sérsniðnar ólar, og þið Hugverjar getið haft samband við mig ef ykkur langar að láta gera ólar handa ykkur fyrir vægt verð ;)

Endilega póstið myndum af ólunum ykkar svona til að krydda uppá fjölbreytileikann :D

ESP/LTD KH-202 (10 álit)

ESP/LTD KH-202 það kannast einhverjir við þennan..
En ég er búinn að matta bodyið og persónulega finnst mér það koma miklu betur út..

Hópmynd =) (7 álit)

Hópmynd =) Jæja ákvað að senda inn hópmynd úr skemmtilega herberginu=)

efri röð frá vinstri:Ibanez RG370DX..ESP/LTD KH202…IBANEZ AX7221(7srengja)…STELLA V með seymour Duncan..

Neðri röð frá vinstri Aria Pro II Stg…Kimbara Les paul (yndið mitt)…Aria proII Stg

5,5x14" Segment snerill (3 álit)

5,5x14" Segment snerill Þetta er snerill sem pabbi minn smíðaði handa trommukennaranum mínum Þorvaldi Kára. Hann er gerður með aðferð sem heitir segment. Hann er úr bæði hlyn (maple) og hnotu (dökki viðurinn). Hann er líka með reinforcement hringum. Hardwarið er af Sonor 3007 sneril.

Effektabrettið (25 álit)

Effektabrettið Þetta er effektabrettið mitt. Er búin að vera að dunda mér við að setja púsla þessu saman, tengja og raða öllu upp.
Þetta er Road Ready taska sem ég fékk í Hljóðfærahúsinu (Pfaff flytja þetta inn), ég er mjög ánægður með hana. Sterk, ekki of þung og mjög sniðug ef þú villt ekki vera með snúrur og vesen útum allt á brettinu þínu :)

Var að ljúka við þetta núna um daginn og held að ég gæti ekki verið mikið ánægðari með útkomuna.
Hörku sound, suðar lítið sem ekki neitt og þægilegt að komast í alla effektana (raðaði þeim auðvitað þannig að auðveldast er að komast að þeim sem ég nota mest).

Ég notaði aðallega Planet Waves patch snúrur sem maður setur saman sjálfur til að tengja þá saman, mæli sterklega með þeim.
Ræður algerlega hvernig snúrurnar er á brettinu hjá þér með þeim (lengd, hvernig þær liggja og hvernig hausarnir snúa). Svo er ég líka með nokkrar Fender 1ft. Koil Kord patch snúrur.


Röðin á effektunum er svona:

- MXR Boost/Line Driver (nota hann til að keyra aðeins upp signalið úr bassanum í gegnum keðjuna)

- EHX BIG MUFF Pi U.S.A. (Fuzz, lítið fuzz en dimmt og þungt sound)

- EHX Big Muff Pi USSR (Fuzz, mikið fuzz, meira treble, þungt en sker vel í gegn)

- Dunlop CryBaby (Bass Wah, nota hann á eftir fuzz effektunum til að fá greinilegra wah sound úr honum)

- Digitech Whammy (nýjasta nýtt á brettinu, mjög skemmtilegur effekt sem ég á eftir að grúska aðeins betur í)

- MXR Stereo Chorus (Chorus, nota hann aðallega til að fá aðeins stærra sound, bæði clean og með drive)

- EHX BassBalls USSR (Twin Dynamic Filter, envelope filter, mjög einkennilegur og “funky” effekt, er einnig með distortion rofa sem eykur bara á geðveikina í þessum pedal)

- EHX #1 Echo (Delay, <– segir sig eiginlega sjálft, get líka notað hann til að búa til skemmtilega skrítið reverb)

- Ernie Ball VP Jr. (Volume Pedal, góður, nettur og sterkur volume pedall)

- Boss TU-2 (Chromatic Tuner, eini pedallinn sem ég gæti ekki verið án, mjög góður tuner sem er alveg brilliant að vera með þegar maður er að spila live, á æfingu eða bara heima)

**- Svo nota ég DC Brick til að fá straum í allt (nema Whammy og Big Muff Pi USSR, þarf sér straumbreyti fyrir Whammy (PS0913B) og battery fyrir Big Muff (ekkert tengi fyrir straumbreyti)


…þetta er brettið mitt. Ef það eru e-r spurningar þá spyrjið mig bara :)

Tveggja strengja (12 álit)

Tveggja strengja Frumlegt, en alveg hryllilega ljótt.

Epiphone 1967 Flying-V (7 álit)

Epiphone 1967 Flying-V Gamli feiti (2ja ára gömul mynd af gamlegamle, líklega svona 15 kílóum feitari en í dag, og með 20cm síðara hár) live á Gauknum þegar hann var og hét, með '94-model Epiphone 1967 Flying-V í standard-D tjúningu. Þar sem maður á alltaf að geta heimilda, þá er þetta stolið af superman.is eins og vatnsmerkið á toppnum gefur til kynna :P

flying V copy hans james (14 álit)

flying V copy hans james Þetta er afar ágætismynd af einum af aðal gíturnum hans James Hetfield í metallica á fyrstu 3 plötunum þeirra.

Margir halda að þetta sé alvöru gibson flying V en þetta er reyndar bara eitthver kínversk copya sem hann keypti á 200 dollara mest út af honum Michael Schenker úr UFO á þeim tíma. Hann lét setja í hann seymour duncan pickupp í brúna hjá sér. Veit afar lítið um specinn í honum nema að hann er með dot inlay og búkurinn er úr adler.

eitthver ágætis myndbönd af gripnum hérna

http://www.youtube.com/watch?v=Ex5UPPfSTGQ

einn önnur mynd


http://userserve-ak.last.fm/serve/_/4848033/Metallica+james1gy8.jpg

nýjir gripir (17 álit)

nýjir gripir
eitt stykki Metal Master og dime crybaby from hell.

Nýji Gripurinn (20 álit)

Nýji Gripurinn Hérna er mynd af nýju gúrkunni. Gibson SG Standard árg. 2006. Smakkast alveg einstaklega vel.
Nei í alvörunni, þetta er gullfallegur gítar og spilast eins og engill nýkominn úr sturtu.

Enjoy :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok