Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

Trivia (23 álit)

Trivia Hvaða gítargoð er hér á ferð?

Epiphone les Paul Custom og Charvette (26 álit)

Epiphone les Paul Custom og Charvette “nýju” gítararnir mínir. Fékk Lessuna seinasta fimmtudag en þennan bláa fyrir einhverjum vikum.

Byrjum á Charvette gæjanum.
Þetta er semsagt Charvette gítar sem að var dótturfyrirtæki Charvel. og þar sem Charvel var systrafélag Jackson er þetta svo eins og litla frænka Jackson gítarana minna. Mjög fínn í háls í honum en böndin eru orin allveg vel notuð enda gítar frá svona sirka 1990. Er með Charvel pickuppum, einum single coil í neck og svo með humbucker í brúnni. Humbuckerinn er eitthvað skaddaður eða þá að rafkerfið sé að stríða honum svo ég hef ekkert notað hann en neck single coilinn hefur fínan tón. Rafkerfið er samt mjög cheap og gítarinn mun fá mikla yfirferð næst þegar ég á pening til ða fara að spreyja og standa í pickuppa kaupum. Er mjög frifinn af þessum hérna og er mögulegt að hann muni verða eitthvað svipaður honum http://grimmusic.grimfacts.org/sold/Charvel4.JPG
Verst bara að ég er ekki með svart hardwere í honum. En gítarinn er líka með svona semi floyd rose, allveg hægt að gera allt sem floyd gerir með því en þetta er frekar cheap licensed útgáfa af því. Samt þægileg að mínu mati.
Hann mun allavega verða góður einn daginn eftir nýtt paint job, pickuppa og rafkerfi.

Lessan er svo nýji dýrgripurinn. Ég hef í rauninni aldrei verið hrifinn af lessum og flestum gibson gíturum en ég er strax orðinn ágætlega vanur þessum. Er nú samt ekki viss um að hann sé keeper en for now er hann afskaplega fínn. Mjög þægilegur háls á honum og frekar spes að spila á svonan mjóann háls. allir mínir gítarar eru með soldið fender style hálsa svo að þetta er mjög frábrugðið öllu sem ég á.

Og já, ég áttaði mig ekki á því fyrr en að e´g var að skoða myndina að ég er með tvö Cannibal corpse plaköt þarna. Þarf að breyta því :P

Gibson Flying V (29 álit)

Gibson Flying V Þetta er Gibson Flying V Standard. Elska þennan gítar =D Fékk hann fyrir svona tæpu hálfu ári. Hann hljómar alveg æðislega og ég býst ekki við því að selja hann einhverntímann.

Smá um gripinn:
22 frets
500T (bridge) og 496R (neck) Gibson pickups (original)
búinn til 2004
Mahogany body
24 3/4" scale

Ég nota .10-.46 strengi í hann.

Washburn Dime custom airbrushed (13 álit)

Washburn Dime custom airbrushed Þetta er Dime-inn minn sem ég lét custom airbrush-a og er mitt tribute til heiðurs þessa mikla snillings sem Dimebag Darrell var og verður ávallt minnst sem slíks !
Ýrr hjá www.tattoobike.com á heiðurinn af þessu verki.
Einnig hefur gripurinn verið uppfærður með nýju rafkerfi sem inniheldur m.a S.D Dimebucker í bridge og Bill Lawrence L-500 í Neck.

Á tónleikum (13 álit)

Á tónleikum Ég ákvað að svara kalli Hödda Darko um myndaleysi. Þarna er ég og hljómsveitin mín Black Sheep að spila á Kreppukvöldi á Bar 11. Þarna er ég með Gibson SG Standard og er að synja bakrödd.

Skora ég á alla að senda gigg mynd af sér á huga!!! Gaman að sjá aðra hugverja. Má ekki bara halda aðra giggmyndakeppni?

Nýjasti gripurinn (11 álit)

Nýjasti gripurinn keypti þennan PRS SE Custom 24 í tónstöðinni um daginn, er mjög sáttur með hann :)

ný backhlið á höfernernum mínum (12 álit)

ný backhlið á höfernernum mínum Skólinn minn gaf mér eld gamlan höfner kassagítar til að ég gæti gert hann upp. meðan að ég var að pússa af honum sprungna lakkið aftan á gítarnum sá ég að bakhliðin var úr krossvið eins og þið sjáið hér. ég tók þá óvenjulegu ákvörðun að setja bara nýja bakhlið úr mahony aftan á það kom bara mjög vel út og hann soundaði bara betur eftir þetta ég vona að ykkur lýkar :D

Litli Hryllingurinn (9 álit)

Litli Hryllingurinn Orange Tiny Terror haus með Tung-Sol lömpum í formagnara og JJ í kraftmagnara og 1x10 Marshall box sem bráðum fær keilu úr Fender Super Six.

Þetta er semsagt nýja stæðan mín. Hljómar guðdómlega, Tiny Terrorinn er svo næmur að maður hefur fullkomna stjórn á honum og þrátt fyrir að vera bara með volume, tone og gain takka þá nær maður ótrúlega fjölbreyttum hljómi. Ég elska það hvað hann er einfaldur í notkun og mér finnst það ekkert vera hamlandi að vera ekki með 3 banda EQ og blablabla. Less is more á algjörlega við hérna. Compressor svínvirkar með honumn til þess að keyra sándið upp og svo er ég líka búinn að prófa overdrive pedal með honum en þarf að spá aðeins meira í það.

Gítargaffall (7 álit)

Gítargaffall á nokkra svona til sölu, henta bæði fyrir straight neck (td Fender)og back (td Gibson)

Ryðfrítt stál, glerblásið og gúmmí. Níðsterkt, það má hengja köttinn sinn í þessu

1500 kall stk

Tom DeLonge. (16 álit)

Tom DeLonge. Tom DeLonge að spila á gibsoninn sinn sem að mínu mati er geðveikur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok