Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.286 stig
384 greinar
39.629 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

Buckethead - Brian Carroll (27 álit)

Buckethead - 	Brian Carroll Fæddur 1969

Tónlistartegund: avant-garde, instrumental, metal, prog.

Hefur gefið út eitthvað um 36 plötur og spilað inná yfir 50.

Spilaði meðal annars með Guns&Roses á tímabili en er hvað þekktastur fyrir að semja og koma solo fram á sviði, spilandi og dansandi.

Án efa einn besti gítarleikari í heimi að mínu mati, Þessi gæji fær allt of lítið credit.

Nýjasta platan hans er kominn út, Enter the Chicken.

Of svalur!

http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendID=30741966

http://www.youtube.com/watch?v=8akmP6Sjv2o

http://www.youtube.com/watch?v=s4q3p_o8A6g&feature=related

http://www.youtube.com/watch?v=UpC5WDLZVC8&feature=related

Gibson Les Paul Classic (23 álit)

Gibson Les Paul Classic þetta er Gibsoninn minn sem ég keypti í sumar ..:p

Hann er 91 árgerð og er algjör snilld ;)

It´s so sweet (16 álit)

It´s so sweet Þessi er samskonar og minn,mæli eindregið með American deluxe seríunni.

Surtur (37 álit)

Surtur Væntanlegur á spilverk.com

Sveittur Marshall (2 álit)

Sveittur Marshall Marshall Halfstack
1987X Höfuð og 1960TV Box
er kannski að fara að fá mér svona :D

Nafn á þessu svarta.... (12 álit)

hvað heitir þetta svarta sem er á milli söngvarans og hljóðnemas?

ég postaði þessari mynd inná /hljóðvinnsa en það kom bara eitthvað kjaftæði þannig að ég ákvað að senda þetta hingað í von um góð svör.

Mitt safn (22 álit)

Mitt safn Hér eru allir mínir gítarar samankomnir mínus einn 12þúsund króna nylonstrengja.

Frá vinstri til hægri eru þarna:
Seagull M6 Cedar, nota hann mjög mikið enda einstaklega skemmtilegur gripur, kostaði líka ekkert svakalega mikið.

Ibanez Artcore AFS75T - búkurinn er hlynur en hálsin mahogany, mjög góður gítar fyrir verðið, færð ekki jafn góðan hollowbody fyrir jafn lítinn pening. Skemmtilegur í blús (mjög góður í pínu skítugum blús) og þesslags.

Appollo Strat eftirlíking - fyrsti rafmagnsgítarinn minn, er strengjalaus eins og er og notaður mjög lítið í augnablikinu, en hefur því meira tilfinningalegt gildi, þetta er hörkugítar miðað við Appollo, held ég hafi gert fínustu kaup, einnig er hann með fallegri Appollo gíturum sem ég hef séð. Það væri nú gaman að gera hann upp, betrumbætan og svona.

R. Sigurðsson jazz bassi, settur saman hér heima af hljóðfærasmiðnum Rúnari Sigurðssyni, fékk hann á einhvern 20þúsund kall eða í kringum það, góð kaup held ég enda fínasti bassi, ég spila kannski ekki mikið á hann en það er alltaf gaman að taka hann upp og spila.

Eastwood Wandre DLX - sjá nýjasti í safninu, keyptur af netinu af framleiðandanum Eastwood Guitars á sirka 60þúsund heimkomið, þetta er endurgerð af gíturum sem framleiddir voru á sjötta áratugnum og geturðu fengið upprunalegu týpuna á hundruðir þúsunda í gegnum eBay til dæmis. Ég keypti hann án þess að hafa nokkurn tíman prufað hann, bara beint af vefsíðunni, pantaði á sunnudegi og var kominn til mín á föstudegi. Ég hreinlega elska þennan gítar, það er ótrúlega þægilegt að spila á hann og tóninn er mjög hreinn og tær. Dugar ekki í metalinn, ekki það að ég sé að spila mikið af svoleiðis, en er alveg guðdómlegur í hreinan jazz eða blús, hérna er smá specs:
Body: Bound Tone Chambered Mahogany
Neck: Bound Maple, Bolt-on
Fingerboard: Rosewood, Star Markers
Scale Length: 24 3/4“
Width at Nut: 1 5/8” ZERO Fret (ekki veit ég hvort núllbandið sé eitthvað betra eða hvaða áhrif það hefur)
Pickups: Three Mini Humbuckers
Switching: Individual on/off
Controls: 1 Volume, 1 Tone
Bridge: Tune-O-Matic, BIGSBY Licensed Tremolo
Hardware: Gotoh Nickel/Chrome
Strings: D'Addario #10
Unique Features: 5-ply body binding, WANDRE signature headstock logo

Bið ykkur að afsaka fatahauginn þarna vinstra meginn, tók ekki eftir þessu fyrr en ég var búinn að setja þetta allt inn í tölvuna og taka uppstillinguna niður, ég nenni ekki að standa í því veseni að klippa þetta út, þið verðið bara að þola þetta.

Warwick Corvette $$ (8 álit)

Warwick ávalt svalir bassar
(sendi inn nýja mynd útaf þessari sem var á undan -> myndakerfið víst eitthvað aðeins í rugli)

Ég að tromma (26 álit)

Ég að tromma Ég að tromma live

Warwick Corvette $$ (1 álit)

Warwick ávalt flottir (sendi inn nýja mynd til að það verði einhver mynd á forsíðu áhugamálsins. -> fyrri myndin klikkaði eitthvað :/)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok