Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

NGD (10 álit)

NGD Fékk mér lessu um daginn. Epiphone Les paul Custom varð fyrir valinu, 2004 módel ef mig minnir rétt.
Gítarinn kom með svartari brú en ekki gull brú eins og venjulegir les paul custom og í stað Custom truss rod plötu stendur Classic á henni. Svo ég husgaði bara fokkitt og breyti honum semi í Les Paul Custom Classic. Tók pickuppacoverin af og setti nýja knoba. Er með nýja tunera í pöntun svo að gítarinn er ekki beint tilbúin, en hann verður það fljótlega þegar nýju svörtu tunerarnir koma.
Ætla svo að halda áfram að fikta í smáatriðum í litasamsetninguni, ætla að halda nokkrum gull smáatriðum en hann verður aðallega svartur.

Annars bara geðveiktur gítar til að spila á. Ég fýla soundið úr honum og hef ekki enn planað neitt um að skipta út pickuppunum. Held að þessir fái bara að halda sér þangað til eitthvað gott býðst hér á huga eða eitthvað.

Önnur Mynd:
http://i647.photobucket.com/albums/uu192/HoddiDarko/IMG_0376.jpg

Rickenbacker 4003 (13 álit)

Rickenbacker 4003 Ákvað að setja mynd af nýjasta bassanum. Þetta er Rickenbacker 4003 frá 1985. Keypti hann hérna inná huga fyrir stuttu og ég gæti ekki verið ánægðari með hann. Hann er í topp standi og það er varla rispa á honum. Síðan fengu hinir bassarnir að vera með en þá stendur eitthvað smávegis um þá hér: http://www.hugi.is/hljodfaeri/images.php?page=view&contentId=7299476#item7300342

Fender Showmaster til sölu (1 álit)

Fender Showmaster til sölu Er að hjálpa félaga mínum að selja þennan gítar þar sem að hann er að flytja til útlanda.

Þetta er semsagt Fender Showmaster, kæmi mér ekki á óvart ef hann væri framleiddur um 2004 en ég er ekki viss. Ástandið er allavega nær fullkomið fyrir utan smá rispu á headstocki sem að ætti að sjást á myndunum sem ég sendi með þessu.
Fender gerði þessa showmaster gítara fyrst í kringum 1998 og framleiðslu var hætt 2009. Þessir gítarar áttu að vera svar Fender við öllum súper strat týpunum sem að Jackson, Carvin og Ibanez voru að gera en samt sem áður fer hann ekkert yfir strikið og er bæði jafn nothæfur í jazz, blús og rokk og metal. Fender enduðu svo á að kaupa Jackson í kringum 2006-4 svo að þeir þurftu ekki lengur að framleiða súperstrat gítara undir fender nafninu.

Fítusar:
Locking Tunerar (gæti verið að þetta séu einskonar trim locks, er þó ekki viss)
Rosewood fretboard
24 fret
flat top headstock
Einskonar set thru neck joint (mjög þægilegt aðgengi að efstu fretunum)
Two stud brú (eiginlega hálf fljótandi, fer eftir því hvernig þú stillir hana, en ekkert af hinum týbýsku Floyd rose vandamálum mun bögga þig. Mynd: http://elderly.com/images/accessories/GEPT/FP5091.jpg )
Tone, volume og 3 way switch.
Seymour Duncan pickuppar (er ekki viss með módelið en eitthvað eins og Pearly gates kæmi mér ekki á óvart, follkomið í allskonar tónlist. Skal finna þetta út fljótlega)
Basswood body með topp úr Aski.

Þessi gítar er allavega frekar solid að mínu mati, ég setti hann upp með 09-42 strengjum en ég er til í að leggja það á mig að setja í hann nýja strengi ef einhver ætlar að kaupann og vill hafa þykkari strengi.
Ég tel þennan gítar allveg fullkominn sem gítar númer tvö tildæmis handa einhverjum sem er farinn að vilja fá gott sound og svo er hann nógu fjölhæfur til að passa í alla tónlist.

Myndir:
Framhlið: http://i647.photobucket.com/albums/uu192/HoddiDarko/IMG_3799.jpg

Bakhliðin: http://i647.photobucket.com/albums/uu192/HoddiDarko/IMG_3798.jpg

Headstock: http://i647.photobucket.com/albums/uu192/HoddiDarko/IMG_3794.jpg

Headstock aftan á: http://i647.photobucket.com/albums/uu192/HoddiDarko/IMG_3797.jpg

Neck jointið: http://i647.photobucket.com/albums/uu192/HoddiDarko/IMG_3795.jpg

Ég spurði Guðna í hljóðfærahúsinu hvað svona gítarar ættu að vera að fara á notaðir og hann sagði að 70 þús væri mjög gott verð á svona grip. Svo að verði sem er sett á hann er eitthvað í kringum 65-70 og öllum tilboðum er vel tekið.

Ég er allavega staddur í Reykjavík og get mögulega skutlast með gítarinn innan höfuðborgarsvæðisins.
Síminn minn er 8455906

Tek auðvitað vel í allar spurningar en endilega hafið frekar samband hér á huga en að hringja í mig þar sem að hátalarinn í símanum mínum er gallaður.

washburn (5 álit)

washburn mjööög fallegur washburn d52swce til sölu

60.000 ef hann fer fyrir helgina :P

Kominn Hringinn :) (31 álit)

Kominn Hringinn :) Nýji Bassmanninn minn.
Ég er búinn að vera friðlaus síðan ég lét síðasta Bassman frá mér. Í millitíðinni er ég búinn að prófa og eiga allt milli himins og jarðar. Nú er vonandi leitinni lokið fyrst að maður er kominn aftur hringinn til baka. Nú er bara spurning hvort maður eigi ekki að spjalla við hann Þröst magnaragúrú og láta hann “Redwinga” hann upp ;)

Hluti af safninu mínu (4 álit)

Hluti af safninu mínu Frá vinstri til hægri:

BC Rich NT Deluxe Warlock5(NT= Neck-thru)
Árnason Custom job frá Spilverk.com
BC Rich NT Virgin

Munnharpa (3 álit)

Munnharpa Svona í ljósi harmonikkumyndarinnar :D
Hér má sjá munnhörpu.
Og svo eitt myndband af gaur sem kann svo sannarlega á þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=rfLhnkme2mE
Þessi náungi var víst á götunni í mörg ár og hafði fátt annað en munnhörpuna, eða svo heyrði ég allavega.

Mæli líka með harmonica + beatbox í related videos

Kappinn byrjaði ungur í þessum bransa (6 álit)

Kappinn byrjaði ungur í þessum bransa Kallinn að taka rosa sóló.

Harmonikka (7 álit)

Harmonikka Mig langar í harmonikku.

also, vantaði nýja mynd.

Fatman Pedal Company (13 álit)

Fatman Pedal Company Sælir nú !
Þann 25. og 26. Mars verða pedalar Fatman Pedal Company frumsýndir á vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind. Pedalarnir eru handsmíðaðir á íslandi, þ.e. boxin eru smíðuð á íslandi, duftuð á íslandi, platan inní smíðuð og víruð á íslandi. Smíðaðir úr gæða íhlutum og allir með true bypass.

Ómar Guðjónsson kemur og leikur listir sínar í gegnum pedala frá Fatman (nánari tímasetning á því kemur síðar á www.facebook.com/FatmanPedalCo )

Framleiðsla byrjar lítil en stækkar svo vonandi fljótlega en pöntunarlisti/biðlisti verður á staðnum fyrir þá sem vilja panta sér eintak.

Endilega like-ið www.facebook.com/FatmanPedalCo og látið sjá ykkur í Smáralind !
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok