þetta er án efa sá flottasti JEM sem ég hef séð. ætla að panta einn frá ebay í sumar ef ég lendi á góðum. en þessi er á ebay núna á 1600 dollara. eða það er buið að bjóða.
Þetta er ágæta safnið mitt en þetta er semsagt Ibanez Jem 555 WH, Godin Artisan sem ég keypti hérna á huga fyrir stuttu og er mjög ánægður með, Epiphone SG sem liggur þarna, Simon & Patrick kassagítar og svo Alhambra klassískur gítar.
Hérna er nýji bassinn minn, ég er því miður ekki með betri mynd af honum þannig að ég skellti bara einu stykki stock mynd af www.spectorbass.com
Þetta er Ibanezinn minn kæri! Þetta er með fallegustu gíturum og ég er nýbúinn að láta EMG 81 og 85 pickuppa í hann og hann hljómar rosalega vel núna! Ég keypti hann í bandaríkjunum fyrir nokkrum mánuðum og hvað get ég sagt, þetta er gæðagripur!