Breyting Jæja eftir mikla umhugsun þá hef ég ákveðið að hætta að gítarbraskast og einbeita mér að þeim gíturum sem ég nota mest. Ég seldi Viperinn sem ég keypti fyrir stuttu og eyddi svolítið af þeim pening til þess að gera gamla greyið mitt upp. Keypti nýja plötu sem fittar humbuckera og setti seymour duncan 59 í háls og custom í brú. Keypti 500kohma potta og 3 átta fender switch og lóðaði.
Það er volume-takki fyrir hvorn pickup en þriðji potturinn er bara til sýnis(þannig að það er ekkert tone), því að ég var orðinn svo pirraður yfir lóðningunni því ég fann ekki teikningu á netinu fyrir 3 átta fender switch fyrir humbuckera fyrr en eftir klukkutíma leit. Gítarinn hljómar eins og villisvín með þessa pickuppa og þeir sem voru á músiktilraunum geta staðfest það :D
Ég er að pæla í því hvort ég ætti að fá mér nýjan háls, en þar sem þessi háls er ótrúlega góður þá tími ég því ekki alveg. Benda má á að gítarinn er búinn til úr furu sem gefur soldið skrítið sound úr búknum. Síðan setti ég málningartape og skrifaði vel valin orð á það :D