Overdrive Special Hér má sjá nýjustu smíðina mína. Þetta er mjög nákvæm eftirlíking af Dumble Overdrive Special magnara. Hann er 100W með 4 stykki 6L6GC. Hann skartar clean rás með overdrive hluta og fótrofastýrðu boosti. Clean lampinn er JJ 12AX7, OD er eins og PI er Sovtek 12AX7LPS. Bright takkinn virkar eins og bright takkinn á blackface mögnurum. Mid breytir soundinu úr klassíska Dumble soundinu og yfir í Fender Blackface sound. Rock/Jazz minnkar gainið. Aðrar stillingar útskýra sig sjálfar. Það er passive efffecta loopa í magnaranum sem tengist við Dumblelatorinn ofan á magnaranum sem er active effecta loopa.

Hér er video af nánast samskonar rás http://www.youtube.com/watch?v=9asODc2hNlU.

Ég er nú þegar byrjaður á næsta projecti en það er að rífa fyrsta magnaran minn í frumeindir og smíða í hann '63 Fender Reverb, Blackface clean og Dumble overdrive rás. En magnarinn var áður Vibroverb eftirlíking.

Ef þið eruð með spurningar þá getið þið PMað mig eða bara hér fyrir neðan.