12 Jæja, skrapp uppí hljóðfærahús með það fyrir stafni að versla mér jólagjöf frá mér til mín =) Endaði á því að kaupa þennan til að hafa sem side-snare.

Þetta er s.s. snerill úr heilu setti (veit ekki afhverju hann var til sölu stakur). Settið heitir HipGig Manu Katche Junior Kit og er hannað sem “high-quality” sett fyrir byrjendur og létt og þægilegt ferðasett fyrir lengra komna.

Settið er gert úr philippine mahogany og með Yamaha Original Air Seal System. Hljómurinn er mjög high pitch og sérstaktur, sem var akkurat það sem ég var að leita mér að.

Ég er mjög sáttur með þessi kaup og hef jafnvel áhuga á að kaupa afgangin af settinu. Endilega látið mig vita ef þið vitið af því einhverstaðar til sölu.