Held að ég hafi aðallega verið að pæla hvaðan ég hef heyrt þetta áður og ég get ekki alveg tengt þennan söng við eitthvað en ég heyrt alveg rosalega svipaða rödd og laglínur undir pop rokki, og þá er ég að meina að ég hafi tekið minn tíma við að venjast honum undir harðari tónlist eins og þið spilið.
Söngurinn yfirhöfuð er ekki slæmur en ekki heldur yfirburða góður, það vantar herslumuninn en svo hinsvegar fýla ég sönginn í Do you know where you are (er að hlusta á myspace), og eiginlega lagið líka.
En ég ráðlegg ykkur að skoða hvernig tónlist þið viljið spila og reyna þróa ykkar eigin stíl, finnst eitthvað vanta í sum lögin.
Pearl Masters BRX Midnight Fade 154# 10x9“ 12x10” 14x14“ 14x6,5” 20x16“