Bassinn minn Fallegi, fallegi bassinn minn.
Smellti nokkrum myndum af honum um daginn, þegar ég fékk nýja linsu á myndavélina mína :P

Annars heitir hann Peavy B-quad 5, og er signature bassi frá snarklikkuðum jass bassaleikara sem ber nafnið Brian Bromberg, en fæstir hafa heyrt um.

Nokkur specs, eftir minni:
24 fret
2 humbuckerar
5 piezo pickuppar
18 volta formagnari (hrikalega kraftmikill bassi)
Grafít háls (ekki tré, heldur grafít)
Maple boddý
Síðan er alveg hrikalega flókið rafkerfi í honum, og tvö output.

Geðveikt fallegt sound, með ótrúlega marga möguleika…

… langaði bara til að deila þessu með ykkur :-)