Gítarinn og nýji magnarinn Var einmitt að fá mér nýjan magnara, eitt stykki Mesa/Boogie Dual Recto Roadster haus og 4x12 Straigh Recto Cab eins og sést á myndinni.

Ég gæti ekki verið meira sáttur með þennan magnara, ótrúlega fjölhæfur og þægilegur. Maður þarf aðeins að læra inn á hann fyrst en ég held að ég sé kominn með góð tök á honum, á bara eftir að skoða manualinn aðeins betur.

En við hlið magnarans er gítarinn minn, ESP Horizon NT-II. Killer Combination verð ég að segja :D

Næst á dagskrá… pedalar og stöff fyrir magnarann :)
…djók