Fjölskyldan Hérna er familían mín, frá vinstri
Da capo kassi, ekkert spes en þetta hljómar ágætlega með elixir strengjum.
Squier Pro-tone Telecaster, snilldar græja úr protone seríunni sem var framleidd í kóreu í stuttan tima, þessi gæti alveg eins verið fender, er með Fender Noiseless pickuppum sem hljóma yndislega og læstum tunerum.
Svo er það flotta græna ukuleleið sem heldur ekki tjúni.
Næst er það Peavey V-Type sem ég keypti í febrúar, hef síðan sett EMG 81/85 sett og straplocks á hann. Mæli með þessum gítörum.
Svo er það fyrsti rafmagnsgítarinn minn, Washburn WI-14.. mjög óspennandi gaur en það er samt ágætt að spila á hann, setti Seymour Duncan JB og humbucker sem var í Telecasternum í hann. Og síðast en ekki síst er fyrsti gítarinn minn, klassískur.. noname Santana ! Fékk hann notaðann í jólagjöf fyrir 4 árum þegar ég var 12 ára. Sést dálítið á honum og væri ágætt að fá nýja tunera á hann.

Svo er ég með Marshall Silver Jubilee 25/50 lampa og crapshit MG10 frá Marshall. Effectarnir eru Pod 2.0, Boss CE-1 og Marshall Guv'nor. Nota þá reyndar voðalítið.