Hljóðfæri Fly frá Parker Guitars er einhver skemmtilegasti gítar, sem ég
hef komist í tæri við. Fyrir utan það hvað hann er nú fallegur þá
er hann mjög léttur og hálsinn alger draumur. Maður heyrir
hvernig maður beinlínis spilar betur þegar maður er með
svona græju í höndunum. Hann sándar mjög feitt og ég
hugsa að hann geti höfðað jafnt til metalhausa og
djassviðrina. Eini gallinn er að þetta eru mög dýr apparöt,
enda nánast handsmíðuð.