Ég er að fara að prófa að smíða mér rafmagnsgítar. Það er kannski fullmikil bjartsýni en ég klúðra því allavegana ekki án þess að prófa. Það eina sem ég get hvergi fundið á netinu er hálsinn. Mér er nokk sama hvernig háls það er svo lengi sem hann er ekki algjört krapp, gítarinn verður enginn gullmoli, þetta er meira uppá lúkkið en hljóðið. Hvað um það, ef einhver veit um stað á netinu þar sem ég get keypt háls stakann væri ég þakklátur, jafnvel ef einhver þarf að losna við háls á sanngjörnu verði.

Kv. gísli