Ég var að pæla í einu, er ekki komið nóg af þessum skoðanakönnunum hér á hljóðfæri um hvað sé besta gítartegundin, hvort maður æfi eða hafi æft á hljóðfæri og hvort að það sé svalt. Svo er mjög vinsælt að spyrja á hvaða hljóðfæri hugarar spila….Ég er svona hálfpartinn kominn með ógeð á þessum könnunum, en þar sem ég er hugmyndasnauður þá sleppi ég því bara að senda inn. Ég hef sennilega svarað sömu spurningunum hér a.m.k. 3svar sinnum. Núna, þann 6. september árið 2002 er til dæmis ein sem ég tel mig hafa svarað nokkrum sinnum áður, hún hljóðar svo : “hefurðu æft á hljóðfæri?”….mér þykir alveg nóg komið af sömu könnununum hérna….