ég er ný byrjaður að læra á gítar, keypti mér bara kennslubók og hljómabók og er bara að reyna að læra á þetta sjálfur og er svona að reyna að finna mér einhver auðveld lög til að æfa mig á og er búinn að vera leita á þessum vinsælu síðum nema hvað ég skil ekki neitt í þessu tabs og chords, veit ekkert hvernig á að lesa þetta svo ég var að spá hvort einhver gæti bent mér á síðu með einföldum leiðbeiningum eða reyna útskýra þetta fyrir mér.

síðan væri líka mjög fínt ef einhver gæti bent mér á eitthvað einfalt lag til að æfa mig á (eithvað annað en “á sprengisandi”)