Reynsla:
Auðunn heiti ég og hef verið að æfa á gítar í rúm 7 ár. Ég hef unnið með ótal hljómsveitum af öllum stærðum og gerðum, djasssveitum og samspilum, þungarokksveitum, rokkgrúppum, popphljómsveitum, ballhljómsveitum og húshljómsveitum fyrir söngkeppnir.
 
Ég hef ágætis reynslu af upptökum og er með grunnþekkingu á flestöllum upptökubúnaði og hljóðvinnslu. 
 
 
Fyrirkomulag:
Námskeiðin eru 4 - 6 vikur. Kennslan er tvisvar í viku. Klukkutimi í senn.
 
Afslappað andrúmsloft þar sem tekin eru fyrir efni samkvæmt eftirspurn nemendans. Í lok námskeiðsins verður boðið upp á upptökudemo af afrakstri kennslunnar ef áhugi er fyrir hendi.
 
 
Efnistök:
Hljómar og hljómanotkun
Útileiguspilamennska 101 
Ryþmagítar
Grunntónfræðikennsla 
Hvernig skal lesa TAB-kerfið og hvernig hægt er að nýta sér það við lagasmiðar
Spunakennsla / Að læra að spinna sóló og lead
Lagasmiðar / Hvernig má þróa einfalda hugmynd svo að úr verði fullmótað lag
 
Get komið í heimahús en er með ágætis aðstöðu í Hafnarfirði.
 
Upplýsingar:
Vinsamlegast hafið samband hér:
 
audunn@mr.is
 
 
Hefst í lok júní/byrjun júlí!