Góðan daginn út um allt.

Hljómsveitin mín, StaleGrenade, leitar að öðrum böndum sem væru til í að spila eitthvað með okkur á giggum hér og þar, sérstaklega í sumar.

Við erum búnir að spila saman í núverandi line-up í ca ár, tókum þátt í Músíktilraunum í fyrra og erum almennt drengir góðir og eigi ódælir.

Við erum með góðar græjur, magnara, söngkerfi, trommusett og slíkt, höfum í rauninni allt sem þarf til að halda lítið gigg á bar eða einhverjum stað.
Það væri samt frábært ef það væri hægt að skipta því niður á hljómsveitir, eitt band kemur með magnara, hin trommusett og söngkerfi eða álíka arrengement.

Við erum að setja saman prógram eins og er, spilum rokk og ról með grunge, pönk og metal áhrifum.

Erum staddir á höfuðborgarsvæðinu, og erum til í að keyra hvert sem er til að spila (innan skynsamlegra marka) :)

Dæmi um hvernig við hljómum má heyra og sjá hér:

http://www.youtube.com/watch?v=V9AFRuIVEpI
http://signmeto.roadrunnerrecords.com/artists/stalegrenade


Hægt að hafa samband hér á huga, eða á stalegrenade@gmail.com

Skoðum allar hugmyndir, endilega hafið samband :)