Sælir gáfumenn og spekingar. Ég er að velta því fyrir mér hvernig pikkuppa er best að nota til að spila á kassagítar í gegnum kerfi. Sjálfur hef ég prófað eina gerð sem var svona sem þú smelltir á opið á gítarnum það var semsagt ekki humpucker eða hvað það hét heldur hin týpan. Sá pikköpp reyndist ekki vel og velti ég því fyrir mér hvort pikköpp sé yfirhöfuð málið frekar þá að mæka gítarinn upp.. En ég hef séð menn eins og Bubba með þetta í pikköpp og velti því ég fyrir mér hvernig hann nær svona góðu sándi..

Með fyrirfram þökk..
blöh