Ég hef eftirfarandi til sölu:

*Ovation CK057 Celebrity rafkassagítar, dark blue pearl: (Rafmagnskassagítar með stálstrengum frá Ovation, með grunnri Ovationskál, nettum hálsi og fallegum hljómi. Aðallega performance og upptöku gítar, þar sem formagnarinn er góður - kassahljómurinn er fallegur, en ekki hans mesti styrkur.): 40.000,-

*Boss FDR1 – Fender Twin Reverb: (Stórskemmtilegur fetill, sem er endurgerð af Fender deluxe reverb magnaranum margrómaða. Hann býður upp á þrælgott gain, víðóma spring reverb og dillandi vibrato, allt eftir hentisemi. Keyptur nýr fyrir tveimur árum, og selst með kassa og bæklingi): 20.000,-

Ég er mögulega spenntur fyrir einhverjum skiptum (þá helst á einhverju hljóðvinnslutengdu, eða ef að rétti klassíski gítarinn býðst. Þó er ég bundinn af að geta komið þessu til Danmerkur, án mikilla vandræða.

Spjöllum í kommentakerfinu, eða í einkaskilaboðum

Bestu kveðjur,
Ingi Vífill

Bætt við 11. janúar 2012 - 10:31
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150507622454316.384138.755924315&type=3
Ég þakka….