Ég er háskólanemi og hef verið að pikka í gítar í smá tíma, lært sjálfur og sótt nokkra einkatíma. Kem úr vinahópi sem er ekkert sérstaklega músíkalskur. Er svona að spá hvort það sé til einhver vettvangur fyrir newbie-a til að hittast og spila saman. Eða þá hvort það séu einhverjir sem vilja stofna til þess konar vettvangs.

Er ekki að tala um hljómsveit endilega. Bara hafa gaman að spila saman.