Í nokkra mánuði núna hef ég verið að taka gítara og bassa í uppsetningar og þrif, gera hljóðfærin shiny eins og ný. Rukka í raun bara efniskostnað (strengi td.) og leyfi fólki svolítið að meta hvað það vill borga mikið.

Á sjálfur nokkra gítara og hef átt í gegnum tíðina allveg helling af gíturum og er kominn með ágæta reynslu í því að fikta og setja upp. Hef núna verið í þessu í nokkra mánuði og gegnið mjög vel, nokkrir hafa komið aftur með hina gítarana sína eftir að hafa fengið uppsetningu.

Uppsetning myndi innihalda þrif og inspection á öllum gítarnum, plús fínstilling á hálsi og inntónun og auðvitað nýjir strengir. Ég get líka farið í einfaldar pickuppatengingar og rafkerfis lögun.

Í flestum tilfellum er ég að gera gítarana þannig að þeir spilist og lýti út fyrir að vera nýkomnir úr kassanum.

Er með myndir hér á facebook af nokkrum gíturum sem ég hef tekið í gegn.

http://www.facebook.com/media/set/?set=a.1937797878357.112105.1044670507&type=1&l=b7a5d605b9

Er staðsettur í Reykjavík.

Endilega hafa samband hér á Huga ef þið viljið spyrja frekar um eitthvað eða koma með gítar til mín.
Nýju undirskriftirnar sökka.