Er ungir trommari frá eyjum. langar að komast í ball-band á fastalandinu. Helst á susðurlandi eða á höfðuborgasvæðinu.
Er helvíti öflugur eins og kennarinn minn vill meina en vantar bara að auka við mig spilamennsku. Get komist uppá land any time eða næstum því. Get spilað liggur við allt svo lengi sem það er ekki eitthvað hevy-metal sull.
Finnst alveg æði að sitja á æfingum og vera að tromma úr mér allt vit. Er virkilega jákvæður að eðlisfari og MJÖG hvatvís. langar helst að koma öllu í verk strax og klára dæmið.

Ef þig langar að stofna band með mér endilega hafðu samband hér svo við getum setist niður yfir einum köldum eða kaffi-bolla og kleinum.

eða er eitthvað band sem er til í að leyfa 22 ára vitleysing frá eyjum koma og testa nokkrar æfingar ?

Endilega látið vita af ykkur hér ég svara um leið og ég get ;)