Er með Orange AD15 combo sem er komið til ára sinna. Framleiddur í Bretlandi og kemur með 12" Vintage 30 keilu.
Þeir sem þekkja vita hvað um ræðir.

Lamparnir eru í sæmilegu ástandi en það er kominn tími til að skipta um þá. Kostar 11þ. með heimsendingu frá eurotubes.com.

Orange logoið vantar framan á grillið en að öðru leiti er hann í óaðfinnanlegu ásigkomulagi.

Er einungis að selja vegna þess að mig vantar pening. Þetta er seinasti hluturinn í safninu sem mig langar að selja.

Er kominn með kaupanda á magnarann en langar að sjá hvað aðrir bjóða áður en ég geng frá því.