Ég var að taka gamla gítarinn niður af háaloftinu eftir 4 ára “pásu”. Hef ekki spilað í einhver 4 ár og er nánast búinn að gleyma öllu sem ég hafði lært. Var að spá hvort þið gætuð ekki komið með nokkur einföld lög sem ég ætti að reyna að spila til að fá gömlu skillzin aftur. Er að leika mér að reyna við Limelight með Rush. Vantar fleiri svona classic lög sem allir kannast við og gaman er að geta spilað. Yrði mjög þakklátur ef einhver mundi nenna að koma með nokkur góð lög sem eru heldur ekki of erfið fyrir mig til að spila og reyna að læra.