Í haust ætla ég og enginn annar en hann Hörður (Darko) Jónsson að koma saman smá rock projecti en alltaf tilbúnir að stinga tánni í laugar hjá öðrum stefnum.

Og okkur vantar þrælvanan og funky bassaleikara og mögulega söngvara eða bæði tvennt í einum pakka.
Bassaleikarinn þarf að vera með sitt á hreinu með tækni og jarðleika. Og geta spunið eitthvað gott á staðnum og komið með innlegg í lagasmíði.

Af og til hafa ég og Hörður djammað saman í afar langan tíma og oftast af því komið mjög vel út.
Við erum ekki hræddir með að spila hvað sem kemur til huga.
Frá dauða og black metal-rock og blues og erum opnir fyrir hverju sem er.

Græjurnar okkar eru af hæstu gæðum og við munum taka soundinu okkar mjög nærri okkur. með að reyna að finna eitthvað hrátt, loðið og mjög spes.

Æfingarhúsnæðið er uppi á höfða hjá litlu bílasölunni. Leigan er mjög lág.

viljum helst að bassaleikarinn sé með aldur til að spila á pöbbum og búi á höfuðborgasvæðinu en samt ekkert ströng regla

hafiði samband hér á huga við annahvort mig eða Hörð