Til sölu Gibson GA-40 Les Paul gítarmagnari, árg. ca. 1961. Þessi hefur örugglega aldrei lent í klónum á íslenskum rótara, kontrólpanellinn eins og nýr og áklæðið hvergi rifið, þetta er nánast sýningareintak!
Hátalarinn er original Jensen P12N og magnarinn er í upprunalegu ástandi að því frátöldu að það er búið að skipta út öllum þéttum í honum..
Útgangslampar eru 6V6 og krafturinn svipaður eða kannski ívið meiri en í gömlum Fender Deluxe. Hönnunin (og sándið) eru hins vegar gjörólík, spennarnir stærri og aðrir lampar í formagnaranum.
Það eru nægar upplýsingar um svona magnara á netinu; Victoria magnarafabrikkan hefur gert nákvæma eftirlíkingu af þeim (Electro King) og selt á tæpa 3.000$ en þessi fæst fyrir talsvert minni pening. Algengt Ebayverð fyrir toppeintak er 1000 til 1200$, druslurnar fást fyrir minna. Gerið endilega tilboð í pm þeir sem hafa áhuga, ég get sent fleiri myndir ef þurfa þykir.

Mynd hér: http://www.facebook.com/photo.php?fbid=257325220949691&set=o.53112396231&type=1&theate