Jæja, í tilefni þess að það eru mánaðarmót ákvað ég að setja inn auglýsingu í von um að landinn eigi nú einhvern pening :D

Ég er að selja Peavey JSX, sem er toppurinn á Peavey mögnurum. Hann er blanda af þessum sem þú ert að pæla í, nema mun fjölbreittari.

Ultra rásin er tekin úr Peavey XXX og þú færð ekki mikið betra stöff í þungrokkið.

Crunch rásin er úr “dirty channel” á Peavey Classic 30, og er frábær í rokk og smooth crunch. Það er samt hægt að stilla gainið mjög hátt og nota hana sem flotta lead channel.

Clean rásin er einnig byggð á Peavey Classic 30' nema bara clean rásinni. Hún er mun betri en þær sem þú finnur í 6505 og XXX.

Ég er líka að selja Peavey 6505 full size cabinet með þessu.

Þetta dót hefur bara verið notað í upptökur og er í prím condition.

Ef þið viljið vita meira dúndrið á mig PM!