Hæ, hæ og svakalegt halló.

Ég og hljómsveitin mín erum að leggja lokahönd á fyrsta diskinn okkar, og vorum í tengslum við það að velta fyrir okkur hvaða fyrirtæki ætti helst að prófa að hafa samband við um dreifingu eða útgáfu.

Eru einhver fyrirtæki sem taka við umsóknum frá hljómsveitum, eða er málið bara að reyna að vekja athygli á sér og bíða eftir að síminn hringi ?

Öll svör vel metin, nema leiðinleg svör, þau verða extra súper vel metin.