Ég er gítarleikari á 19 ári og langar til þess að stofna hljómsveit eða ganga til liðs við slíka. Ég hef verið að spila á gítar í 5 ár núna.

Ég hef áhuga á að spila aðallega klassískt rokk og kannski smá fönk. Síðan elska ég The Smiths en ég sé ekki fyrir mér að gera tónlist að hætti þeirra en ég útiloka ekki neitt.


Uppáhaldsgítarleikarar eru Jimi Hendrix og Johnny Marr úr The Smiths. Svo hef ég verið að fönka mig aðeins up a la Nile Rodgers.

Ég bý í Hafnarfirði og er með bílpróf.

Ég er líka með góðar græjur og nógu háværan lampamagnara fyrir hljómsveitir.

Bless.
“Casual Prince?”