Sælt veri fólkið.
Langar svolítið að koma mér í band aftur eftir alltof langt hlé, sem lead gítar.
Hef spilað á gítar í 11 ár, er 21 árs í augnablikinu.
Spilaði á gítar með Severed Crotch og Diabolus á sínum tíma, og hef aðallega dauðarokk á ferilskránni. Kominn með nóg af því, er ekki að leita að slíku núna.
Helstu áhrifavaldar eru Avenged Sevenfold, Pantera, Metallica, Megadeth, Nevermore, Children of Bodom.
Nenni ekki einhverju growl veseni, vil komast í band með öflugum söngvara og öflugum hljóðfæraleikurum. Helst einhverjum sem hafa reynslu af því að vera í hljómsveit.
Aldur skiptir ekki öllu, svo lengi sem menn séu ekki langt undir tvítugu.

Ef einhver vill hafa samband skal það helst gert með tölvupósti á mr.einarsson at gmail.com - kem ekki til með að skrá mig inn hérna reglulega til að skoða einkapóst.