Hello.

Mig langar að setja inn smá auglýsingu fyrir hljómsveitina mína, StaleGrenade.
Við erum 18-20 ára og erum staðsettir á Akranesi/Reykjavík. Myndi kalla tónlistina okkar einhvers konar Grunge/Punk Rokk blöndu.
Höfum spilað í ca 7-8 mánuði, og viljum endilega taka upp demo með ca 8 lögum.
Við erum líka að leita okkur að giggum/hljómsveitum til að spila með, til í allt svo lengi sem það er ekki hinum megin á landinu :)
Við höfum spilað með hljómsveitum eins og Sgt. Miller's Misbehavious Daughter, Skerðing, Assasin of a Beautiful Brunette og Narfur.

Við erum með upptökur á myspace, þær eru í slæmum æfingagæðum.
Reyndar fórum við í skúrinn á rás2 í október í fyrra og tókum upp um 10 lög, en vorum nýbúnir að skipta um trommara og vorum illa æfðir. Því eru þær upptökur ekki góðar, auk þess að þær voru mjög illa mixaðar og unnar. Fengum ekki einu sinni öll 10 lögin til baka.

Bottom line: Við erum að leita að giggum/hljómsveitum til að gigga með og ódýrum stöðum til að taka upp eins og 8 laga demo.
Skoðum allar tillögur og hugmyndir, hvort sem það er venjulegt stúdíó eða heimastúdíó. Bara að það kosti ekki of mikið og geti skilað upptökum í góðum gæðum :)

Endilega hafið samband við mig hérna á huga eða í stalegrenade@hotmail.com :)

kv,
Marinó /StaleGrenade