Hef til sölu Fender Jazzmaster CIJ (Crafted in Japan) JM-66 í Sunburst.
Gítarinn var keyptur nýr 2007, pantaði hann hjá japanskri hljóðfæraverslun og er því eini eigandinn af honum.

Með honum fylgir allt sem kom með honum nýjum (þunnur Fender poki, tremolo sveif og bæklingar á japönsku, mjög skemmtileg lesning). Læt einnig fylgja strap locks og ól.

Gítarinn er í mjög góðu ástandi, nánast eins og nýr enda mjög lítið notaður.

Hér eru nokkrar myndir:

http://moog.blog.is/album/jazzmaster/

Nýr svona gítar myndi kosta vel í kringum 160 þús. kr. kominn til landsins með sköttum…

Ég vil hinsvegar fá 90 þús. kr. stgr. fyrir minn sem ég tel mjög sanngjarnt verð, þýðir því lítið að reyna prútta verðið eitthvað niður.

Ég er hrifnastur af beinni sölu en þar sem flestir hafa verið að bjóða mér ýmsar græjur uppí þá virðist það eflaust vera venjan í dag… þannig ég skoða einhver skipti + milligjöf.

Best er að ná í mig í S: 862-9790 (Þorvaldur) eða senda skilaboð hér á huga ef þið hafið áhuga.