Til sölu Vox AC30CC1 lampamagnari, keyptur 2006. 1x12 Celestion Neo Dog hátalari. Hefur aldrei farið úr heimahúsi, aðeins notaður við upptökur. Toppgripur eins og flestir vita en ég get ekki lengur réttlætt að sitja á honum og nota hann svona lítið, auk þess sem mig vantar bæði peningana og plássið sem hann tekur. Hætt var að framleiða þessa magnara í nóvember 2006 en AC30CC2 voru á nánast sama verði á sínum tíma og kosta nú nýir 155 þúsund kall í Tónabúðinni. Verð 99 þúsund.

http://www.tonika.nl/shop/imagesgroot/AC30CC1.jpg

Á sama stað er Washburn D10SCE kassagítar með pickup og innbyggðum tuner, mjög þægilegur gítar. Keyptur 2007, bara notaður til heimabrúks, aldrei farið úr húsi. Verð 30 þús.

http://ecx.images-amazon.com/images/I/41eq8%2BIGJVL._SL500_AA300_.jpghttp://www.tonika.nl/shop/imagesgroot/AC30CC1.jpg

Fyrirspurnir velkomnar á hramos (hjá) mi.is. Mig vantar ekki stærri eða dýrari magnara í staðinn.