Um er að ræða Marshall JCM 2000 TSL 100 hausinn.

Hann er nýyfirfarinn af Þresti og nýlega skipti ég um alla lampana og setti fjóra EL34 og fjóra ECC83 í hann, allir frá JJ.

Þetta er 100 watta skrímsli svo kraftinn vantar ekki en einnig má þrýsta á hnapp sem gerir hann 20 wött, þægilegt fyrir heimanotkun. Clean hljóðið í þessum er mjög smooth og gott, einnig má mjög auðveldlega rokka áheyrendur úr sokkunum með overdrive rásunum sem eru mjög þéttar og hljóma vel með öllum gítörum.

Mynd af eins magnara

Umsagnir

Tilboð óskast í hausinn eða stæðuna. Er einnig opinn fyrir skiptum á öðrum lampahausum eða combo-um.

————————————

Boxið er Marshall JCM 800 1960A týpan með fjórum G12T-75 keilum. Það fer með TSL-inum, ekki sér.

Mynd af eins boxi

————————————

Svo er Marshall MG250DFX. Tvær 12" keilur, 50w hvor sem gerir 100w. Tvær rásir, clean og overdrive og svo er chorus, delay, reverb og flanger í honum, allt stillanlegt. Mjög fínn æfingamagnari sem hefur líka nægan kraft fyrir tónleika. Pedall til að skipta um rásir og til að kveikja og slökkva á effektunum fylgir með.

Mynd af eins magnara

Umsagnir

Verðhugmynd: 55 þúsund