Sælir pungar og vagínur !

Vill bara minna á að 5 laga demo/ep-ið mitt (ODINN) sem ber nafnið Despair er enn til sölu og ekki mörg eintök eftir þannig ef e-r hefur áhuga um að gera að hafa samband annaðhvort hér eða senda mér línu á ofocker(hjá)gmail.com

Nett jólagjöf handa metalþyrstum böllum og físum !

Fyrir þá sem ekki vita spila ég og sem öll lög sjálfur en fékk aðstoð frá Mik (Bastard) sem samdi texta og gargaði inní 2 lög.
Kjartan (Severed Crotch/Bastard) kemur einnig við sögu en hann smellti inn einu gítarsóló og var svo í bakröddum í einu lagi.
3 af 5 lögum eru instrumetal.

Hér má hlusta á lögin http://www.myspace.com/odinntheviking

Hér má finna viðtal sem tekið var fyrr á árinu http://www.eyjafrettir.is/frettir/2010/05/25/tonlistin_er_min_leid_til_tjaningar

Til gamans má geta að diskurinn er til sölu í USA hjá Mordbrann Musikk en þeir aðilar einmitt gerðu samning við dáðadrengina í Beneath en þeir hafa reyndar gert nýjan samning nú við annað fyrirtæki.

Hugsanlega fer diskurinn í sölu einnig hjá frönsku distro-i og titillagið (Despair) mun birtast á safndisk von bráðar sem er gefinn út af bresku fyrirtæki og það sem er hvað skemmtilegast við það er að lagið mitt verður lag nr.1 á þessum safndisk sem mun innihalda 12 lög með jafnmörgum böndum.

Diskurinn selst á skitnar 900 kr. og sendingarkostnaður er innifalinn í þessu verði.

Mbk. Óðinn