Sælir,
er hér með eitt stykki Roland D50 synthesizer sem ég er að selja eða leitast eftir skiptum á.
Synthesizerinn er í frábæru ástandi og ekkert að honum fyrir utan það að ein nótan á borðinu kemur alltaf inn á fullu velocity, en það er tiltölulega einfalt mál að laga ef menn nenna að gefa sér tíma í það. Hefur ekki angrað mig enn sem komið er.

Ástæða fyrir sölu er sú að þrátt fyrir það að vera frábær synthi er hann ekki alveg að fitta inní það sem ég er að gera með bandinu mínu.
Þetta er víðfrægur og eftirsóknaverður synthesizer og hefur endað á óteljandi plötum í gegnum árin.

Ég er helst að leitast eftir skiptum á öðrum synthesizer og þá væri ég hvað heitastur fyrir einhverjum Roland Juno eða þá MicroKorg XL. Skoða þó einnig gamla MicroKorginn ef um milligreiðslu er að ræða.

En ég skoða að sjálfsögðu öll tilboð og skipti.
Ef einhver vill endilega henda á mig verðtilboði þá vinsamlegast gerið það í einkaskilaboðum.

Hér má finna allt það helsta um synthann og ýmis tóndæmi.

http://www.vintagesynth.com/roland/d50.php


Bætt við 28. október 2010 - 11:25
Skoða einnig skipti á Korg MS2000 ef einhver er svo djarfur.