Ég hef til sölu frábæran kassagítar Washburn d52SWce. Þetta er með allra fínustu kassagíturum sem Washburn smíðar og er með gegnheilum við bæði í toppi, baki og hliðum. Ódýrari týpur eru með laminated bak og hliðar. Það er spruce toppur en maghagony frá hondúras í hliðum og baki. Þessi er með cutaway og fallegt innlay í fingraborðinu. Gítarinn er mjög vel uppsettur hvað action og playabillity warðar.

Mahagoný gefur sérlega mildan hljóm og kröftugt trebble sound. Allir sem þekkja kassagítara með gegnheilum við þekkja muninn auk þess sem hljómurinn þroskast og batnar með aldrinum. Þessi gítar var keyptur nýr í október 2008. Vel með farinn og lítið notaður, þó er pínulítil dæld í toppnum en það hefur engin áhrif á hljóm og sést lítið.

Góður B-band pickup og formagnari er í gítarnum ásamt innbyggðum tuner. Mjög góður í live spilamennsku.
Hér má lesa review um þennan gítar og sjá mynd (þessi er reyndar ekki með cutaway)
http://www.washburn.com/news-and-reviews/reviews/d52sw-review.html

Hardcase getur mögulega fylgt með.

Svona gítar kostar 750 USD í Ameríku og líklega um 115-120þ í Hljóðfærahúsinu ef þeir væru til.

Óska eftir tilboð í einkaskilaboðum