Græjuperrinn!

Græjuperrinn, hljóðfæra- og effektamarkaður Hins Hússins, verður haldinn í Hinu Húsinu 2. nóvember.

Á græjuperranum gefst áhugasömum tækifæri á að skoða, sýna og selja græjur tengdar hljóðfærum eða hljóðfærin sjálf. Magnarar verða á staðnum svo hægt verður að prófa græjur og spá og spekúlera áður en keypt, skipt eða selt er.
Ef þú hefur áhuga á að koma með græjur til að sýna eða selja (gítarar, bassar, hljómborð, trommur, effectar, magnarar o.s.frv.) endilega sendu tölvupóst á hitthusid@hitthusid.is

ATH við hvetjum alla áhugasama um að koma og prófa og leyfa öðrum að prófa sínar græjur, engin þörf er á að kaupa eða selja frekar en fólk vill.

Endilega látið þetta berast!

Kv. starfsfólks Hins Hússins