Er með eitt slíkt stykki sem ég nota orðið mjög lítið þessa dagana. Langar að finna honum gott heimili þar sem hann fær ekki þá notkun sem hann á skilið hjá mér sem stendur.

Þeir sem hafa áhuga vita um hvað ræðir þannig ég þarf lítið að útskýra dýrið. Þetta er hinn óumdeildi konungur flangeranna og hefur verið leynivopn margra snillinga á borð við Billy Corgan, Omar Rodriguez-Lopez og Paul Gilbert til að nefna nokkra.

Lengi vel voru þessir pedalar algjört unobtainium þar til þeir voru endurútgefnir núna í ár með örlítið breyttu sniði.

En ég er að leitast eftir alvöru verðtilboðum í hann (eru að fara á 500-600$ á ebay) eða eftir skiptum á hljóðgervlum. Skoða nánast hvaða módel sem er.

Ég er tilbúinn til að skoða slétt skipti á Korg R3 eða jafnvel MicroKorg-XL ef gott eintak býðst.