Við erum þrír (enn sem komið er) drengir á 17 aldursári og höfum allir mikla unun á reggae og að spila það. Því langaði okkur til þess að að stofna reggae-band og erum hér með að auglýsa eftir fólki sem hefði áhuga á að taka þátt í þessu með okkur. Við spilum sem sagt á gítar, bassa og trommur og það sem vantar væri þá brass(t.d trompet, básúna, klarinet) hljómborðsleikara og anann gítar. Við höfum hugsað okkur að byrja á því að cover-a soldið og þá sérstaklega listamenn eins og t.d. Bob Marley (að sjálfsögðu), Peter Tosh, Third World, The Black Seeds, The Abyssinians, Katchafire, Gondwana o.s.frv.) Höldum að þetta væri virkilega skemmtilegt og vona að þið reggae-áhugamenn þarna úti séuð til í tuskið!