Ég er að leita að Peavey Classic 50 410 magnara. Þeir virðast vera ófáanlegir í búðum hérna og svo eru fáir að selja þá hérna á huga.

Ég neyðist til að kaupa erlendis frá. Ég hef oft keypt frá Thomann en þessi magnari er ekki in stock hjá þeim og þeir vita ekki hvenær það verður.

Er ekki vonlaust að panta frá USA þessa dagana, hef heyrt að music123 og musicianfriend take ekki íslensk kort.

Er einhver önnur verslun í Evrópu en Thomann sem er hægt að versla við?