Sælt veri fólkið.

Ég óska eftir:

´65 Fender Super Reverb

í skiptum fyrir:

´65 Fender Twin custom 15 (1x15 tommu keila)

Þessir tveir magnarar kosta það nákvæmlega sama upp á dollar beint frá Fender.

Ástæðan fyrir þessum pælingum er sú að ég er að leita eftir magnara með svipaðan sánd karakter og Twinninn minn, en með lægri wattatölu.
Twinninn er heil 85 wött sem gerir hann aðeins of kraftmikinn fyrir mínar þarfir. Super Reverbinn er 45 wött og á aðveldara með að láta lampana urra á lægra volume-i, sem er akkúrat það sem ég er að sækjast eftir.

Þetta er kannski langsótt en um að gera að prófa ;)

Twinninn gæti verið falur til sölu fyrir rétt verð þar sem ég veit um einn Super reverb til sölu.

Tilboð berist í einkaskilaboð.

Kveðja
Gunni
"To me a guitar is a guitar and they need to be played. Not be in museums or treated like holy relics." ~Joe Bonamassa~