Jæja ég ætla að athuga hvort að einhver græjuperrinn hérna hafi áhuga á að grípa þetta þrælfína stykki. Um er sem sagt að ræða hinn upprunalega A/DA Flanger (frá 197? í mint ástandi) sem menn eins og Billy Corgan, Omar Rodriguez-Lopez og Paul Gilbert hafa treyst á í gegnum tíðina… svona bara til að nefna nokkra.

En ég er semsagt að leitast eftir skiptum á einhverjum hollowbody eða slíkum body miklum gítar. (Epiphone, Gretch etc. etc.)
Ég skoða samt flest allt þannig að ef einhver hefur áhuga á að grípa hann þá bara henda á mig EP.