Já góðan dag, við erum tveir gítarleikarar sem værum til í að stofna hljómsveit. Við hlustum báðir mikið að rokk þá svona mest Deep Purple, Led Zeppelin en annars er það ekkert til að festast við.
Það væri gaman að fá trommuleikara, bassaleikara, söngvara og svo væri gaman að fá hljómborðsleikara. Við værum með bílskúr til að spila í, einnig er þar trommusett sem er ekkert rosalegt en það virkar.
Ég hef spilað á gítar í c.a. 2 1/2 ár og hinn gítarleikarinn í c.a. 4.
Við erum báðir 16 ára og erum búsettir í reykjavík